Photostop.is

Skilmálar netverslunar

Photostop áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Upplýsingar um seljenda

Seljandi er Dicuil ehf., kt. 680408-1490, Flesjakór 13, 203 Kópavogur

Greiðslur og verð

Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í Netverslun Photostop.
Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Eurocard/Mastercard eða Amex.
Netverslun Photostop notar örugga greiðslugátt frá Rapyd á Íslandi. 

Öll verð í netversluninni eru með 24% virðisaukaskatti (VSK) og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Sendingarmáti

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Photostop ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Photostop til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Frí heimsending, þ.e. á næsta pósthús, er á pöntunum 20.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Sendingarkostnaður við hverja pöntun er 1.500 kr. fyrir heimsendingu og 1.000 kr. fyrir sendingu á pósthús en fellur niður ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Skilafrestur eða endurgreiðsla

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.

Persónuupplýsingar og trúnaður

Photostop heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.photostop.is eru eign Dicuil ehf. Og er öll afritun og endurdreifing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Dicuil ehf. Photostop er skráð vörumerki í eigu Dicuil ehf. Og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Dicuil ehf.

 Varnarþing

Viðskipti við Photostop er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.